Kosning í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík hófst mánudaginn 30. okt.
Kosið er utan kjörfundar á flokksskrifstofunni, að Hallveigarstíg 1, alla daga vikunnar sem hér segir:
30. okt. – 3. nóv. kl. 10-17,
4. og 5. nóv. kl. 12-16,
6.-9. nóv. kl. 10-18 og
10. nóv. kl. 12-20.
Flokksbundið fólk og þeir sem undirrita stuðningsyfirlýsingu við Samfylkinguna geta kosið í prófkjörinu en stuðningsyfirlýsingunni verður eytt eftir kosningar. Merkja á í númeraröð við átta frambjóðendur og hafa þau Ingibjörg Sólrún, Össur og Jóhanna ein gefið kost á sér í fyrstu þrjú sætin. Sjálfur sækist ég eftir fjórða sætinu og þætti vænt um stuðning þinn og þinna. Kjörstjórn leggur áherslu á að þeir sem taka þátt í prófkjörinu hafi kynjasjónarmið í huga við val sitt.
Lokakjördagur er 11. nóvember og fer prófkjörið fram í félagsheimili Þróttar í Laugardal kl.10-18